Tók sæti á þingi í dag
25. Nov. 2010 kl.23:38
Laugardagsfundur í fyrramálið
Gestur fundarins á morgun verður skattstjórinn í Vestmannaeyjum, hann Ingi Tómas. Fróðlegt verður að heyra hann tala um embættið og fyrirhugaðar breytingar þessarar ríkisstjórnar á því. Ég hvet því alla til að mæta kl. 11.00 niður í Ásgarð.
Ein spurning og eitt svar dugar
Hér að neðan er hægt að lesa grein eftir mig sem birtist í Morgunblaðinu í dag, föstudaginn 27.nóvember. Greinin ber yfirskriftina "Ein spurning og eitt svar dugar".
Nú eru Íslendingar búnir að senda til Brussel tæplega 9.000 blaðsíður af svörum við 2.500 spurningum Evrópusambandsins vegna umsóknar okkar um aðild að ESB. Og á næsta ári ætlum við samkvæmt fjárlagafrumvarpinu að eyða 250 milljónum króna til að ræða málin á grundvelli þessara spurninga og svara. Gott og vel. Það má færa ákveðin pólitísk rök fyrir því að úr því sem komið er sé best að láta málið renna sitt skeið til enda í þessum farvegi.
Fjörugur laugardagur framundan
Nú á laugardaginn kl. 11.00 verður laugardagsfundur í Ásgarði líkt og venja er orðin. Gestur fundarins er Arnar Sigurmundsson og fundarefnið eru lífeyrissjóðir. Það verður að segjast eins og er að Arnar er líklega manna færastur í að ræða málefni lífeyrissjóðanna þannig að búast má við góðum fundi.
Kominn tími til að taka upp þráðinn
Það er kominn tími til að taka upp þráðinn frá því í vor. Hér má því búast við að verði reglulegri uppfærslur en hafa verið síðastliðna mánuði.
Fimm dagar í kosningar
Af nógu hefur verið að taka frá prófkjöri, - ferðalög um kjördæmið, vinnustaðafundir og aðrir fundir, boð, sælkerakvöld og fleira. Það hefur verið gaman að taka þátt í þessari baráttu og einstaklega gaman að sjá hvað kjördæmið býr yfir kraftmiklu og öflugu fólki sem lætur sig hag okkar allra varða.
Í kvöld er borgarafundur á Selfossi. Þar mun leiðtoginn okkar í kjördæminu, Ragnheiður Elín, verða til svars. Fundurinn verður sýndur á Rúv og hvet ég ykkur til þess að horfa, nú eða mæta hafið þið kost á því.
Nú þegar 5 dagar eru í kosningar ríður á að við Sjálfstæðismenn stöndum saman. Við höfum gengið hreint til verks og munum gera það áfram. Ég hvet þig til að leggja okkur lið á endasprettinum.
Kæru stuðningsmenn!
Þakka ykkur innilega fyrir stuðninginn í prófkjörinu á laugardaginn. Ég fékk góða kosningu í það sæti sem ég sóttist eftir þannig að árangurinn var í samræmi við mínar björtustu vonir. Fyrir það er ég ykkur afar þakklát.
Sérstaklega er ég þakklát þeim sem um allt kjördæmið hjálpuðu mér í baráttunni með ráðum og dáð. Ég get játað það nú að ég vissi auðvitað ekki nákvæmlega út í hvað ég var að fara með þátttöku í prófkjörinu. Þetta bar frekar brátt að en ég ákvað að láta slag standa og henti mér út í djúpu laugina. Sem betur fer voruð þið þar tilbúin með kútana að taka á móti mér! Takk fyrir það.
En nú hefst sjálf kosningabaráttan. Ég tel okkur vera búin að koma saman sigurstranglegri forystusveit á framboðslistanum - hæfileg blanda af reynslu og nýgræðingi. Þrjár ungar konur í fjórum efstu sætunum - geri aðrir betur!
Nú tökum við höndum saman og tryggjum Sjálfstæðisflokknum sterka kosningu í Suðurkjördæmi!
Takk fyrir mig,
Íris Róbertsdóttir
Íris kosin!
Uppgjör og endurnýjun
Sjálfstæðisflokkurinn stendur frammi fyrir mörgum stórum verkefnum á næstu vikum. Gengi flokksins í kosningunum í næsta mánuði mun ráðast af því hvernig til tekst með úrlausn þeirra.
Á landsfundi flokksins í lok þessa mánaðar þarf að fara fram hreinskilið uppgjör á hremmingum síðustu mánaða, og flokkurinn þarf að axla sína ábyrgð í þeim efnum af kjarki og einurð. Þetta uppgjör snýst ekki um væntanlegar niðurstöður rannsóknarnefndar Alþingis eða sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins. Þetta snýst um pólitíska ábyrgð og trúverðugleika.
Á Lækjarbakka
Íris fór að hitta frændfólk sitt í Vík á mánudaginn.
Í eldhúsinu hjá Ragnhildi frænku.
Lokaspretturinn hafinn
Þá er lokaspretturinn í prófkjörsbaráttunni hafinn. Íris kom til Eyja í dag og verður í Eyjum fram yfir prófkjör. Mikill gangur og stemmning er fyrir framboðinu og er verður spennandi að sjá hvað setur.
Af nógu er að taka næstu tvo dagana og verkefnin eru næg. Kosningaskrifstofa Írisar verður opin allan morgundaginn, fram á kvöld. Heitt verður á könnunni og eru gestir og gangandi hvattir til að líta inn.
Hægt er að hafa samband við Írisi á netfanginu
irisr@irisr.is eða í síma 694-2902.
Reykjanesbær í dag!
Íris tók góðan rúnt um Suðurlandið í gær, Vík, Klaustur, Selfoss og fleiri staðir voru heimsóttir. Mótttökurnar sem hún hefur fengið eru góðar, og er Íris þakklát fyrir.
Dagurinn í dag er notaður í heimsóknir á Reykjanesi og hitta það góða fólk sem þar býr. Í kvöld kl. 20 verður sameiginlegur framboðsfundur á Ránni í Reykjanesbæ. Eru íbúar og aðrir áhugasamir hvattir til að mæta.
Minnt er á að 16-18 ára einstaklingar mega kjósa í prófkjörinu, en þeir verða að vera búnir að skrá sig í flokkinn fyrir kl. 17.00 á morgun.
Á framboðsfundi á Höfn
Í kvöld var Íris á framboðsfundi á Höfn. Fundurinn tókst vel til og er Íris ánægð með viðtökurnar.
Á morgun heldur Íris ferð sinni um Suðurlandið áfram, sveitirnar, Vík í Mýrdal, Kirkjubæjarklaustur ofl. staðir verða heimsóttir.
Sl. fimmtudag var frábært kvennaboð haldið í Reykjanesbæ. Hægt er að sjá myndir af því í myndasafninu hér á síðunni.
Á ferð og flugi
Íris fór snemma í morgun með flugi upp á Bakka og hefur verið á stöðugum fundum í dag. Fyrst í Hveragerði og Selfossi og síðar í dag í Reykjanesbæ. Stefnan er síðan tekin á Höfn á mánudaginn.
Kosningaskrifstofa Írisar í Vestmannaeyjum er á Kirkjuvegi 10. Þar er opið alla daga og heitt er á könnunni.
Minnt er á að utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hafin. Hægt er að sjá nánar hvar hægt er að kjósa undir liðnum "um prófkjörið" hér á síðunni.
Framboðsfundur í Eyjum í kvöld
Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi verða á framboðsfundi í Akóges í kvöld klukkan 20. Eru Eyjamenn hvattir til að mæta og kynna sér frambjóðendur.
Sjávarútvegurinn aftur „inni“
Sjávarútvegurinn er aftur "inni" en ekki "úti" eins og krakkarnir segja. Meðan hæst stóð á stönginni í pappírstilflutningum í bönkunum í Reykjavík þótti sjávarútvegurinn frekar hallærisleg og gamaldags atvinnugrein. Ungt fólk hafði ekki áhuga á menntun á því sviði, viðskiptafræðin og MBA-námið heillaði. Útrásarvíkingarnir og fjölmiðlarnir þeirra, margir stjórnmálamenn og sjálfur forseti lýðveldisins töldu þjóðinni trú um að framtíð hennar fælist í því að flytja peninga og pappíra fram og aftur um heiminn.
Kvennaboð í Ásgarði
Síðastliðið laugardagskvöld var haldið kvennaboð í Ásgarði en þar voru staddir kvenframbjóðendurnir Ragnheiður Elín Árnadóttir sem býður sig fram í 1.sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, Unnur Brá Konráðsdóttir sem býður sig fram í 2.sætið og eyjakonan Íris Róbertsdóttir sem býður sig fram í það fjórða. Frambjóðendur höfðu stutta framsögu, svöruðu spurningum og tóku lagið við undirleik Leós Snæs Sveinssonar. Gríðargóð mæting var í boðið en rúmlega 80 konur létu sjá sig. Skoðaðu myndir í myndasafninu hér á síðunni.
VÍKJUMST EKKI UNDAN ÁBYRGÐ
Þangað til um daginn hafði Sjálfstæðisflokkurinn verið samfellt í ríkisstjórn í 18 ár - næstum allan þann tíma í stjórnarforystu. Á þessu skeiði urðu gríðarlegar framfarir á Íslandi, - lífskjör þjóðarinnar stórbötnuðu og velmegun jókst á öllum sviðum.
Af þessu eigum við sjálfstæðismenn að vera stoltir. Þjóðin treysti okkur til þessara verka og við brugðumst ekki því trausti. Af sömu hreinskiptni og við erum stolt og upplitsdjörf af okkar góðu verkum eigum við ekki að víkja okkur undan ábyrgð á því sem hefur misfarist á Íslandi síðustu misserin og árin. Og þetta snýst ekki um lögfræðilega sekt eða sýknu eða bið eftir skýrslum rannsóknarnefnda, - þetta snýst um pólitík.